Brjánsi

Brjánsi Áhugamál mín eru kvikmyndagerð, tónlist og ritsmíðar ýmisskonar, alhliða listsköpun, mannleg samskipti og þróun tilfinningargreindar minnar. Forfallin bútasaumsfíkill með stórt safn undir rúmi. Hamingjusamur og hryllilega skemmtilegur. Þoli ekki fólk sem drekkur Tab að staðaldri. Hef gaman að áhugaverðum manneskjum. Þykist stundum vera amatör sálfræðingur og elska að kryfja fólk, með eða án þeirra vitneskju. Ágætis camelljón sem get aðlagast hinum ýmsu aðstæðum, ekki þó aðlögunnarinnar vegna heldur í þágu rannsóknarhagsmuna. Er þekktur fyrir að leysa vandamál af mikilli natni og áhuga, vera vinur vina minna og að týna upp vængbrotna fugla og kenna þeim að fljúga þótt ég geti ekki einu sinni flögrað sjálfur.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Brjánn Árnason

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband